Brúðkaupsveisla
Gerðu daginn þinn að því sem hann á skilið að vera
ATH. Veislustjórar okkar eru oftar en ekki bókaðir marga mánuði fram í tímann svo því mælum við með að bóka tímanlega
Allt tónlistartengt fyrir brúðkaupið á einum stað.
Við getum séð um brúðkaupsveisluna fyrir þig frá A-Ö með faglegri og stórskemmtilegri veislustjórn með okkar frábæru skemmtikröftum, singalong skemmtiatriði og auðvitað trúbador/dúó, DJ eða hljómsveit fyrir ballið. Einnig er hægt að bóka ákveðnar þjónustur sér. Kíktu á pakkana okkar hér fyrir neðan. Þá er hægt að bæta við pakkana eftir óskum.
Lýsing
Er stóri dagurinn á döfinni? Við gerum ykkar dag að því sem hann á skilið að vera og bjóðum upp á frábærar lausnir til að gera daginn ógleymanlegan. Okkar veislustjórar vinna góða undirbúningsvinnu til að gera kvöldið eins vel heppnað og skemmtilegt og hægt er. Auk pakkanna er auðvitað hægt að bóka þjónustuleiðir okkar sér líka.
Viltu láta taka upp viðburðinn. Myndatökumaður frá okkur getur fangað stemninguna bæði í formi myndbanda og ljósmynda
Tími: Eftir dagskrá
Brúðkaupspakki með trúbador
Í þessum pakka fæst fagmannleg og stórskemmtileg veislustjórn þar sem dagskrá er gerð í samvinnu við brúðhjón. Að formlegri veislustjórn lokinni tekur trúbador/dúó við sem heldur fjörinu gangandi.
Hægt er að bæta við:
Hljóðkerfi, hljóðmanni, ljósum, photobooth, sviði o.fl.
Lifandi fordrykks/dinner tónlist, Lounge DJ, uppistandi o.fl.
Brúðkaupspakki með DJ
Í þessum pakka er hægt að bóka Rikka G og Heiðar Austmann sem útbúa faglega og stórskemmtilega veislustjórn þar sem dagskrá er gerð með brúðhjónum. Að formlegri veislustjórn lokinni tekur trúbador við í singalong fjör með slögurum sem allir ættu að þekkja. Í kjölfarið þeyta þeir skífunum eins og þeim einum er lagið fram á kvöld.
Hægt er að bæta við:
Hljóðkerfi, hljóðmanni, ljósum, photobooth, sviði o.fl.
Lifandi fordrykks/dinner tónlist, Lounge DJ, uppistandi o.fl.
Brúðkaupspakki með hljómsveit
Í þessum pakka fæst fagleg og stórskemmtileg veislustjórn með veislustjóra/teymi þar sem dagskrá er gerð með brúðhjónum. Fáðu grín, leiki, lifandi tónlist og fjörið í þína brúðkaupsveislu. Að formlegri veislustjórn lokinni tekur veislustjóri/trúbador við í singalong fjör með slögurum og lögum sem allir ættu að þekkja og í kjölfarið byrjar hljómsveitin ballið.
Hægt er að bæta við:
Hljóðkerfi, hljóðmanni, ljósum, photobooth, sviði o.fl.
Lifandi fordrykks/dinner tónlist, Lounge DJ, uppistandi o.fl.
Gestasöngvara/leynigest
Fordrykks/Dinner tónlist/Lounge DJ: Við tökum að okkur að flytja lögin sem þú þekkir í lágstemdum búningi sem hljómar í bakgrunninum þegar fólk er að mæta í veisluna og skapa með því ríkari upplifun brúðkaupsgesta. Hægt er að fá lifandi tónlist bæði með einleik (gítar/söng) og dúó/tríó Jóns Ragnarssonar saxafónleikara. Lounge DJ er plötusnúðsstemning sem hægt er að hafa þegar fólk mætir í veisluna.
Skemmtiatriði: Skemmtiatriðið okkar virkar þannig að maður frá okkur kemur inn af krafti og nær fólkinu vel í gírinn með bráðskemmtilegu singalong og t.d. söngkeppni á milli kynja eða borða og rífur þannig vel upp stemninguna.
Ballstemning: Klassísk trúbador stemning, frábært ball með hljómsveit eða þá láta dansgólfið hristast með DJ. Við tökum að okkur brúðkaupsveislur og höldum uppi stuðinu í allt að ca 2,5klst.
