Lifandi tónlist/trúbb
Lifandi tónlist, já takk:)
Ertu að halda upp á afmæli, fagna stórum áfanga eða einfaldlega að fara að halda veislu, starfsmannagleði eða eitthvað annað skemmtilegt? Fáðu þá reyndan trúbador frá Trúbba á svæðið til að keyra upp stemninguna.
Lýsing
Lifandi tónlist gerir alla viðburði skemmtilegri og það er bara eitthvað við trúbador stemninguna sem erfitt er að útskýra, það er bara þannig. Hér fyrir neðan má sjá nokkra af okkar trúbadorum sem kunna fagið upp á tíu. Við bjóðum upp á að spila í allt að 1,5 klst. Þetta fer bara alveg eftir því hverju þú ert að leita að.
Allt að 1,5 klst (30mín, 45mín, 60mín eða 90mín)
Meðfærilegur lítill magnari innifalið. Við getum einnig græjað topp hljóðkerfi
Jón Gunnar, er búinn að spila reglulega fyrir Trúbba í fjöldamörg ár við mjög svo góðar undirtektir. Jón Gunnar er tilbúinn í að koma með trúbbastemningu í partýið og gerir bara gott partý enn betra.
Diddi, er mikill orkubolti sem kann að láta gestina syngja og dansa eins og enginn sé morgundagurinn. Diddi er mjög reyndur trúbador og hann græjar þitt partý, það er ekkert flóknara en það.
Brynhildur Odds, forsprakki Beebee and the bluebirds er afar kraftmikil söngkona sem er einnig forsprakki Trúbbatríósins okkar. Brynhildur kemur með frábært prógram og alvöru singalong. Fáðu Brynhildi á svæðið til að keyra upp stemninguna.
Pálmi Partýstjóri, er mikið að koma fram sem veislu- og Partýstjóri Trúbba en hann hefur mjög gaman af því að skella sér í trúbba gallann og skemmta með bestu óskalögunum og auðvitað fylgir óhjákvæmilega smá gamanmál með.
Ingvar Valgeirs, eða guðfaðir trúbbanna eins og hann er oft kallaður er tilbúinn með frábært prógram á viðburðinn þinn. Ingvar er þessi trúbador sem kann hin ótrúlegustu lög og hikar ekki við að blanda smá gamanmáli með.
Mateusz, er frábær lausn í staffapartýið með pólsk/enska trúbbastemningu sem þú getur sungið og dansað við. Mateusz er reyndur skemmtikraftur og vanur því að koma fram.. Bókaðu Mateusz á svæðið til að keyra upp stemninguna.
Arnar Friðriks, er afar reyndur skemmtikraftur og þekktur fyrir frábæra stemningu & stórskemmtilegt trúbbaprógram sem þú getur sungið og/eða dansað við. Fáðu Arnar á svæðið til að græja singalong í þitt partý.
