viðburðaráðgjöf

Trúbbi veitir alhliða ráðgjöf fyrir viðburði og vinnum við markvisst að því að þinn viðburður heppnist sem allra best en hvernig virkar ráðgjöfin okkar? Enginn viðburður er eins og við nálgumst ráðgjöfina með tilliti til þess hvernig þú sérð viðburðinn fyrir þér. Við hjá Trúbba þekkjum langflesta sali á Íslandi mjög vel og veitum faglega ráðgjöf. Við hjálpum þér með skipulag og framkvæmd þar sem við komum bæði með ráð og tillögur út frá reynslu.

Hljóð- og tæknimál: Við veitum ráðgjöf með uppstillingar á hljóðkerfi og hvernig gerð/stærð hljóðkerfis þarf miðað við gestafjölda viðburða. Einnig hjálpum við til að meta með hvort þurfi hljóð/tæknimann eður ei. Þetta fer allt saman eftir hverjum viðburði fyrir sig en við erum með reynslumikla hljóð/tæknimenn hjá okkur. Við förum yfir öll tæknimál sem þú þarft með þér þar sem markmiðið er að viðburðir gangi smurt fyrir sig.

Ljós: Ljós gera heilan helling fyrir upplifun gesta á viðburðum. Við athugum aðstæður og uppstillingu á ljósum og þar sem passa þarf að þau ónáði ekki gesti. Sumir salir eru með ljós en það er mismunandi eftir sölum. Við getum bæði komið með ljósashow eða bætt við ljósum sem vantar upp á til að upplifun gesta sé sem allra best. Við metum einnig hvort það þurfi ljósamann fyrir viðburði en við erum með frábæra ljósamenn hjá okkur. Við hjálpum þér með þetta eftir því hvernig þú sérð viðburðinn fyrir þér.

Skemmtun/dagskrá: Veislustjórar hjálpa þér með uppsetningu á dagskrá með sérstöku tilliti til þess að flæðið sé gott og að atriði séu sett skipulega upp. Við erum með hjá okkur frábæra skemmtikrafta, tónlistarmenn, veislustjóra, plötusnúða o.fl. sem geta séð um frábæra skemmtun á þínum viðburði.

Séróskir/þarfir: Sért þú með einhverjar hugmyndir sem þú sérð fyrir þér á viðburðinum þá aðstoðum við með það. Það getur verið allt á milli himins og jarðar (Dæmi: Aðrir skemmtikraftar, þythokkíborð eða annar búnaður).

Viðburðastjóri: Ef þú ert að fara að halda árshátíð þá fer eftir hversu fjölmenn hún er og hversu mikið umstang henni fylgir hvort það þurfi viðburðarstjóra. Yfirleitt sendum við viðburðarstjóra frá okkur í stærri árshátíðir.

Skreytingar: Við sjáum um að skreyta fyrir viðburði með vinum okkar í Skreytingaþjónustunni. Við gerum þetta eins og þú sérð þetta fyrir þér og við komum mjög oft með ráðleggingar. Einnig getum við séð um þetta alfarið fyrir þig.

Trúbbi er í góðu samstarfi við fyrirtæki þegar þarf að útvega búnað sem þú þarft fyrir þinn viðburð.


Við hlökkum til að aðstoða þig

Arnar Friðriks, eigandi Trúbba