Árshátíð erlendis

Láttu okkur sjá um dagskrána á meðan þú skemmtir þér

ATH. Veislustjórar okkar eru oftar en ekki bókaðir marga mánuði fram í tímann svo því mælum við með að bóka tímanlega

Er árshátíð erlendis á döfinni? Við tökum að okkur að sjá um skemmtun fyrir árshátíðir erlendis og getum séð um dagskrá fyrir árshátíð frá A-Ö með skemmtun sem svíkur engan. Skoðaðu skemmtikrafta okkar nánar hér að neðan og kíktu hér á áfangastaðina sem samstarfsaðilar okkar í Kompaníferðum eru með.

Lýsing

Bókaðu frábæra skemmtikrafta fyrir árshátíðina hjá okkur með stórskemmtilegum og vönum veislustjórum sem koma með fjörið, skemmtunina, leikina, fjöldasönginn, uppistandið og trúbbastemninguna eða DJ-settið. Skemmtikraftar okkar sjá um faglega undirbúningsvinnu fyrir árshátíð í samráði við viðskiptavini og smíða dagskrá og prógram eftir þörfum þeirra.