Pálmi Hjalta, Partýstjóri Trúbba
Veislustjórnun þar sem húmor, skemmtun, lifandi tónlist er við völd ásamt ýmis uppákomum
Lýsing
Með fjörugum leikjum, skrípaleik, almennum kjánaskap og dass af Pálmaskap nær partýstjórinn Pálmi Hjalta, upp frábærri stemmingu. Þess á milli grípur hann í gítarinn og tekur lagið. Pálmi stýrir viðburðum af fagmennsku og nálgast engan viðburð eins. Pálma er hægt að bóka sem trúbador eða DJ að lokinni formlegri veislustjórn. Partýstjórinn tekur að sér árshátíðir, jólahlaðborð, þorrablót, brúðkaupsveislur og önnur tilefni. Hentu á okkur línu og kannaðu málið
Viðmiðunartími fyrir veislustjórn er 3-4klst
